skip to Main Content

Nýir dreifiskápar fyrir gagnaver Advania Mjölnir 3.

Orkuvirki afhendir tvo nýja dreifiskápa fyrir nýtt gagnaver Advania Mjölnir 3 á Fitjum í Reykjanesbæ.  Um er að ræða Tabula dreifiskáp fyrir línurofa frá Hager ásamt mælingu fyrir útganga. Skáparnir eru hannaðir af Verkfræðistofu Jóhanns Indriðasonar.  Smíðin gekk hratt fyrir sig og skilaði Orkuviki skápunum á aðeins fjórum vikum frá því pöntun var staðfest.

Byggingin sem hér um ræðir er 1300m2 límtrésbygging, klædd með yleiningum og lituðu bárujárni og mun hýsa um 1500 netþjóna og 95m2 starfsmannaaðstöðu og verkstæði.

Í miðjubili verða 2 dreifistöðvar, með 2 spennum hver og er orkuþörf gagnaversins um 4,5 MW.

 

Myndband:

Hér má sjá gagnaverið rísa.

 

Advania_afangi_2_01 Advania_afangi_2_02 advania_gagnaver-5 gagnaver_advania1

Back To Top