skip to Main Content

FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI 2021

Fimmtudaginn 21. Október, tók Orkuvirki við viðurkenningu fyrir Framúrskarandi fyrirtæki árið 2021.  Þetta er í sjötta skipti sem Orkuvirki hlýtur viðurkenninguna.  Það voru þau Guðmundur Sigvaldason framkvæmdastjóri og Erla Eiríksdóttir yfirverkefnastjóri sem veittu viðurkenningunni viðtöku.

Orkuvirki er í hópi þeirra rúmu 800 fyrirtækja sem hlutu viðurkenninguna í ár samkvæmt mati Creditinfo. Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra.

Árlega vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur.

Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtækin að uppfylla eftirfarin skilyrði:

  • Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
  • Ársreikningi skal skilað á réttum tíma lögum samkvæmt
  • Hefur skilað ársreikningi til RSK síðustu þrjú ár
  • Fyrirtækið er virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
  • Rekstrartekjur að lágmarki 50 milljónir króna síðustu þrjú ár
  • Framkvæmdarstjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) jákvæður síðustu þrjú ár
  • Ársniðurstaða jákvæð síðustu þrjú ár
  • Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% síðustu þrjú ár
  • Eignir að minnsta kosti 100 milljónir króna síðustu þrjú ár

Orkuvirki ehf. – ISL Viðurkenning

Orkuvirki ehf. – EN Viðurkenning

Back To Top