Orkuvirki hefur haft vottað gæðastjórnkerfi í samræmi við ISO 9001 síðan árið 2016. Nú hefur…
FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI 2021
Fimmtudaginn 21. Október, tók Orkuvirki við viðurkenningu fyrir Framúrskarandi fyrirtæki árið 2021. Þetta er í sjötta skipti sem Orkuvirki hlýtur viðurkenninguna. Það voru þau Guðmundur Sigvaldason framkvæmdastjóri og Erla Eiríksdóttir yfirverkefnastjóri sem veittu viðurkenningunni viðtöku.
Orkuvirki er í hópi þeirra rúmu 800 fyrirtækja sem hlutu viðurkenninguna í ár samkvæmt mati Creditinfo. Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra.
Árlega vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur.
Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtækin að uppfylla eftirfarin skilyrði:
- Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
- Ársreikningi skal skilað á réttum tíma lögum samkvæmt
- Hefur skilað ársreikningi til RSK síðustu þrjú ár
- Fyrirtækið er virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
- Rekstrartekjur að lágmarki 50 milljónir króna síðustu þrjú ár
- Framkvæmdarstjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
- Rekstrarhagnaður (EBIT) jákvæður síðustu þrjú ár
- Ársniðurstaða jákvæð síðustu þrjú ár
- Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% síðustu þrjú ár
- Eignir að minnsta kosti 100 milljónir króna síðustu þrjú ár
Orkuvirki ehf. – ISL Viðurkenning