Creditinfo framkvæmir árlega fjárhagslegt styrk- og stöðugleikamat á fyrirtækjum landsins og birtir í kjölfarið lista…
Ný aðaldreifing fyrir Veðurstofu Íslands
Orkuvirki hefur undirritað samning um smíði og uppsetningu á nýrri aðaldreifingu fyrir Veðurstofu Íslands. Um er að ræða aðaldreifiskáp með tveimur 1250 A aðalrofum, fyrir heimtaug og varafl.
Verkið er liður í því að Veðurstofa Íslands og danska veðurstofan DMI hafa gert með sér samningi um stór aukið samstarf á sviði rannsókna og verðurtengdrar þjónustu. Sett verður upp ný ofurtölva til útreikninga í þessu samstarfi.
Nýja tölvan er tíu sinnum stærri en sú sem danska veðurstofan er nú með, og þarf því miklu meira rafmagn, sem er mun ódýrara hér. Í dönskum fjölmiðlum kemur fram að orkusparnaðurinn sé 440 megawattstundir á ári, sem samsvari rafmagnsnotkun 100 heimila.