Creditinfo framkvæmir árlega fjárhagslegt styrk- og stöðugleikamat á fyrirtækjum landsins og birtir í kjölfarið lista…
Þjálfun í tengingum 66 kV strengja
Orkuvirki í samvinnu við NKT- kapalframleiðanda frá Svíþjóð sem hefur selt háspennu-jarðstrengi til Landsnets sem leggja á suðurlandi nú í sumar.
Strengirnir eru 66kV og eru lagðir annarsvegar á milli Þorlákshafnar og Selfoss, og hinsvegar milli Hvolsvallar og Hellu.
Milli Hvolsvallar og Hellu koma strengirnir í stað gamallar línu sem á að leggja niður, og strengirnir milli Selfoss og Þorlákshafnar eru til þess að bæta afhendingaröryggi raforku á svæðinu. Það er að koma á hringtengingu milli Selfoss-Þorlákshafnar og Hveragerðis.
Hlutverk Orkuvirkis í þessu verki er að sjá um tengingar, hafa umsjón og eftirlit með útdrætti og lagningu strengjanna ásamt breytingum á spennuvirkjum fyrir Landsnet til að geta tekið við þessum sömu strengjum.
Sérþjálfaða starfsmenn og sérhæfð verkfæri þarf til verksins.
Nú stendur yfir þjálfun í tengingum með sérfræðingum frá NKT í Þýskalandi og Svíþjóð og eru starfsmenn Orkuvirkis eftir þessa þjálfun komnir með skírteini fyrir tengingar á 66kV jarðstrengjum NKT.
Myndir frá námskeiðinu.