Orkuvirki er tækni- og verktakafyrirtæki með vörur og þjónustu fyrir veitur, orkuframleiðendur og iðnað.
Hjá fyrirtækinu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga; verk- og tæknimenntaðir, iðnaðarmenn og sérhæfðir verkamenn.
Meginstarfsemi Orkuvirkis er í raforkugeiranum og í iðnaði.
Hún hefur einkum falist í hönnun, framleiðslu og uppsetningu rafbúnaðar í orkuver, iðjuver og fyrir veitur
Sérhæfing Orkuvirkis er í:
- vinnu við háspennuvirki, útvegun búnaðar, hönnun og uppsetningu ásamt
gangsetningarprófunum - hönnun og framleiðslu á gerðarprófuðum aflrofaskápum fyrir háspennu, 12 kV
- hönnun og framleiðslu á lágspennutöflum (hefur umboð fyrir lágspennubúnað frá
töfluframleiðandanum Eaton Holec í Danmörku) - hönnun og þjónusta við stjórn- og varnarbúnað ásamt samskiptagáttum
- þjónustu og viðhaldi rafbúnaðar
Orkuvirki var stofnað árið 1975 af nokkrum rafverktökum og tæknimönnum á
höfuðborgarsvæðinu. Megintilgangur fyrirtækisins var að takast í sameiningu á við verkefni
sem voru of stór fyrir einstaka verktaka. Starfsemi fyrirtækisins var ekki samfelld fyrr en
1994. Þangað til voru gerð tilboð í verk sem hentuðu fyrirtækinu og unnin þau tilboð sem
fengust.
Árið 1994 varð Orkuvirki að fullu eign Tryggva Þórhallssonar og fjölskyldu hans. Frá 2003
voru eigendur Tryggvi Þórhallsson, Þórhallur Tryggvason og Kristján Guðmundsson og
síðan hafa bæst í eigandahópinn Magnús Tryggvason, Stefnir Þ. Kristinsson, Guðmundur
Sigvaldason og Tryggvi Þórhallsson.
Eftir um tæplega 50 ára farsælan rekstur skiptist starfsemin í hönnun og eigin framleiðslu á
háspennuaflrofaskápum og lágspennudreifitöflum ásamt uppsetningu raforkuvirkja fyrir
viðskiptamenn.
Í samstarfi við aðra hefur Orkuvirki einnig tekið að sér verkefni á öðrum sviðum iðnaðar.
Eigin framleiðsla er einkum gerðarprófaðir aflrofaskápar fyrir háspennu, 12 kV. Orkuvirki er
umboðsaðili fyrir lágspennubúnað frá töfluframleiðandanum Eaton Holec í Danmörku. Mest
hafa verið notaðir töfluskápar af gerðinni Tabula.
Orkuvirki er í hópi reyndustu raftæknifyrirtækja á Íslandi og hefur umtalsverða reynslu á
vélasviði. Fyrirtækinu hefur löngum tekist að ná í rétta aðila til samstarfs hverju sinni til
hagsbóta fyrir viðskiptamenn um verkefnin sem liggja fyrir.
Vörðurnar okkar
Myndræn saga Orkuvirkis
Skrifstofa
Tunguháls 3
110 Reykjavík
Hringdu
520-7800
Tölvupóstur
orkuvirki@orkuvirki.is