skip to Main Content

Orkuvirki hefur flutt inn lágspennurofaskápa frá framleiðandanum Eaton-Holec, gerð Tabula, undanfarin 20 ár. Framleiddar hafa verið ótal töflur þar sem rofaskápar af þessari gerð eru notaðir. Aðaltöflur, mótordreifingar og undirdreifingar eru í orkuverum, iðnaði, hjá opinberum stofnunum og einkafyrirtækjum víða um land. Helsti búnaður sem settur er í þessa rofaskápa hefur verið frá öllum meginframleiðendum rofabúnaðar, svo sem Siemens, ABB, Schneider, en rofaskáparnir henta sérlega vel fyrir rofa frá framleiðandanum Schneider (Merlin Gerin).

Í seinni tíð hefur aukist framleiðsla á jafnspennutöflum fyrir allt að 220 V spennu, bæði fyrir hjálparbúnað aðveitustöðva og fyrir varaafl frá geymum.

Helstu eiginleikar Tabula rofaskápa eru:

  • Gerðarprófaðir 690 V (400/230 V) aflrofaskápar, 260 til 7.800 A
  • Prófað í samræmi við staðalinn IEC IEC/EN 60439 (1 og 3)

Helstu kennistærðir:

  • 600/1.000 V, (2/3,5 kV)
  • 276 kA (peak),  120 kA (í 1 sek)

Tabula-skapur

Skapur

Tabula Skapur 2

Tabula Skapur 3

Tabula skuffa

Jafnstraums skapur(DC-kerfi) fyrir spennistöð

Lágspennutafla í færanlegri spennistöð

Tilbúin-DC-skápur

Back To Top