Eigin framleiðsla Orkuvirkis á aflrofaskápum er 12 kV rofaskápar af gerðinni TRYGGVI 2000.
Þetta eru gerðarprófaðir fullhólfaðir rofaskápar til notkunar í aðveitustöðvum.
Helstu eiginleikar skápanna eru:
- Gerðarprófaðir 12 kV aflrofaskápar, 630 til 2500 A
- Prófað eftir staðlinum IEC 60439 (1 og 3)
Helstu kennistærðir:
- 12 kV (28/75 kV)
- 31,5 kA og ljósbogaþolsprófun (31,5 kA í 1 sek)
- Málstærð safnteina allt að 2.500 A
- Einfaldir eða tvöfaldir safnteinar
Aflrofinn sem er notaður í þessa rofaskápa er framleiddur af ABB.
Til eru tvö afbrigði af þessum rofa, með SF6 gas sem rofmiðil eða með lofttæmi (vacuum).
Allur rafbúnaður í rofaskápunum er keyptur beint frá framleiðendum búnaðarins.
ABB, gerð UNISEC fyrir dreifistöðvar
Nýjung á Íslandi 2014 í samstarfi við ABB og Johann Rönning
- Allt að 24 kV, 1.250 A og 25 kA
- Skilrofa- og varrofaskápar
- Aflrofaskápar
Kynningarsíða Tryggvi 2000