Orkuvirki er raftæknifyrirtæki með vörur og þjónustu fyrir veitur, orkuframleiðendur og iðnað.
Meginstarfsemi Orkuvirkis er í raforkugeiranum og í iðnaði. Hún hefur einkum falist í:
- hönnun, framleiðslu og uppsetningu rafbúnaðar í orkuver, iðjuver og fyrir veitur
Sérhæfing Orkuvirkis er í:
- vinnu við háspennuvirki, útvegun búnaðar, hönnun og uppsetningu ásamt gangsetningarprófunum
- hönnun og framleiðslu á gerðarprófuðum aflrofaskápum fyrir háspennu, 12 kV
- hönnun og framleiðslu á lágspennutöflum (hefur umboð fyrir lágspennubúnað frá töfluframleiðandanum Eaton Holec í Danmörku)
- hönnun og þjónusta við stjórn- og varnarbúnað ásamt samskiptagáttum
- þjónustu og viðhaldi rafbúnaðar.